Viðtal sem Gunnar Hansson tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Sumarmálum 14. ágúst 2024.
Kerfisbundin, markviss rannsókn á samanburði á áhrifum teikningar og skrifaðra orða á minni var framkvæmd í fyrsta sinn í heiminum árið 2000, eftir því sem best er vitað, og stóð Unnur Óttarsdóttir fyrir henni. Enn í dag hefur engin önnur rannsókn verið gerð í heiminum svo vitað sé á langtímaminni og teikningu sem nær yfir svo langan tíma.
Unnur framkvæmdi einnig rannsókn þar sem samanburður var gerður á minni með teikningu og skrift hjá einstaklingum með mismunandi getu til að leggja orð á minnið. Niðurstöður rannsóknarinnar birtust árið 2024 og er þetta fyrsta rannsókn sinnar tegundar á heimsvísu, að því er best er vitað.
Minnisteiknirannsókn Unnar markar því tímamót í sögu listmeðferðar og náms- og sálfræði í heiminum.
Eitt hundrað þrjátíu og fjögur börn á aldrinum níu til fjórtán ára tóku þátt í megindlegri rannsókn árið 2000 þar sem áhrif teikninga á minni var rannsakað. Samanburður var gerður á minni orða sem voru skrifuð annars vegar og hins vegar voru teiknaðar myndir af innihaldi orðanna.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að börnin mundu að jafnaði jafnmikinn fjölda skrifaðra orða og teikninga þegar þau rifjuðu upp strax eftir að þau höfðu teiknað og skrifað (próf 1). Þrem vikum eftir teikninguna/skrifin mundu börnin að jafnaði tvisvar og hálfu sinnum fleiri myndir sem þau höfðu teiknað en orð sem þau höfðu skrifað (próf 2). Nítján af þeim 134 börnum sem tóku þátt í rannsókninni rifjuðu upp teikningarnar og skrifuðu orðin níu vikum seinna og mundu þá að jafnaði fimm sinnum fleiri teikningar en orð sem þau höfðu skrifað (próf 3b). Enn í dag hefur engin rannsókn verið gerð í heiminum, svo vitað sé, á langtímaminni og teikningu sem nær yfir svo langt tímabil.
Niðurstöður rannsóknar Unnar á samanburði á minni með skrift annars vegar og teikningu hins vegar, hjá einstaklingum með mismunandi getu til að leggja orð á minnið, birtust árið 2024 í tímaritinu Education Sciences. Í rannsókninni tóku þátt 262 fullorðnir og 134 börn. Þátttakendur sem áttu auðvelt með að muna skrifuð orð mundu þau enn betur til langs tíma þegar þau teiknuðu í stað þess að skrifa. Þá gáfu niðurstöður einnig til kynna að einstaklingar sem eiga erfitt með að leggja orð á minnið gætu munað þau að jafnaði 45 sinnum betur þremur vikum síðar þegar þau höfðu teiknað innihald orðanna fremur en að skrifa þau.
Fimm börn sem áttu við námsvanda að etja og höfðu upplifað álag og/eða orðið fyrir áföllum tóku þátt í eigindlegri tilfellarannsókn. Grundaðri kenningu var beitt við greiningu gagnanna. Markmið rannsóknarinnar var að hanna og rannsaka listmeðferðaraðferð sem auðveldar skólanám og bætir tilfinningalega líðan. Minnisteikningar eru hluti af slíkri námslistmeðferð.
Í rannsókninni fengust vísbendingar um að minnisteikning auðveldi nemendum að muna á ýmsa vegu margskonar bóknámsþætti, svo sem stafsetningu orða, þýðingu erlendra orða og staðreynda í tengslum við til dæmis landafræði.
Til viðbótar við vísbendingar um að minnisteikningar auðveldi nemendum að muna bóknámsþætti kom einnig í ljós í eigindlegu tilfellarannsókninni að minnisteikning getur stuðlað að úrvinnslu tilfinninga og erfiðrar reynslu á sama hátt og listsköpun í listmeðferð almennt.
Kenningar og aðferðir listmeðferðar eru mikilvægar til að útskýra og skilja minnisteikningaferlið sem er sérstaklega brýnt þegar um ræðir börn sem hafa orðið fyrir áföllum og hafa takmarkaðan stuðning í lífi sínu. Teikningin getur fært upp á yfirborðið viðkvæmar tilfinningar og nauðsynlegt er að meðferðaraðilinn/kennarinn skilji og hafi þekkingu á myndsköpunarferlinu og mikilvægi tilfinningalegs stuðnings fyrir þann sem teiknar.
Óttarsdóttir, U. G. (2024). Experiments on the Efficacy of Drawing for Memorization among Adults and Children with Varying Written Word Memory Capacities: A Two-Way Crossover Design. Education Sciences, 14(5), 470. https://doi.org/10.3390/educsci14050470
Óttarsdóttir, U. G. 2024 Memory Drawing for Children who have Experienced Stress and/or Trauma and have Specific Learning Difficulties. Í: M. Cao, R. Hougham and S. Scoble (Ritstj.) Memory: Shaping Connections in the Arts Therapies (bls. 118-141). Oxfordshire: Routledge.
Ottarsdottir, U. 2020 Elaborare emozioni e memorizzare attraverso il disegno (memory drawing) [Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing]. (M. D. Cagnoletta, C. Corlatanu, S. Cosimini, S. Musolino, V. Nicholls, þýðendur.) (Útgefið fyrst 2018). ATOL: Art Therapy OnLine, 11(1).
Unnur Óttarsdóttir (2019) Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu. Íslensk þýðing greinarinnar (2018) Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing. ATOL: Art Therapy OnLine 9(1). ATOL: Art Therapy OnLine 10(1). Sótt á: http://journals.gold.ac.uk/index.php/atol/article/view/549/pdf
Ottarsdottir, U. 2019 Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu. Íslensk þýðing greinarinnar: (2018) Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing. ATOL: Art Therapy OnLine 9(1). Glæður: fagtímarit félags sérkennara á Íslandi, 29. árgangur bls. 72-85.
Ottarsdottir, U. (2019) Ethical Concerns when Applying Drawing for Memory: Research Conducted in Iceland. In: A. Di Maria (Ritstj.). Exploring Ethical Dilemmas in Art Therapy (bls. 266-272). New York: Routledge.
Unnur Óttarsdóttir (2019) Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu. Íslensk þýðing greinarinnar: (2018) Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing. ATOL: Art Therapy OnLine 9(1). Glæður. 29. árgangur bls. 72-85.
Ottarsdottir, U. (2018) Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing. ATOL: Art Therapy OnLine, 9(1). Sótt á: http://journals.gold.ac.uk/index.php/atol/article/view/486/pdf
Viðtal sem Gunnar Hansson tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Sumarmálum 14. ágúst 2024.
Fréttir af niðurstöðum minnisteiknirannsóknar Unnar.
Viðtal sem Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir og Rúnar Róbertsson tóku við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Morgunútvarpi Rásar 2.
Viðtal sem Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson tóku við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Mannlega þættinum 22. maí 2023.
Viðtal sem Leifur Hauksson tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Samfélaginu 27. febrúar 2020.
Viðtal sem Gunnar Hansson tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í Mannlega þættinum 28. nóvember 2018.
Viðtal sem Andri Freyr Viðarsson tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu Stöð 2 í Síðdegisútvarpinu 22. nóvember 2018.
Viðtal sem Haukur Már Helgason tók við Unni Óttarsdóttur fyrir Kvennalblaðið 22. nóvember 2018.
Viðtal sem Birna Pétursdóttir tók við Unni Óttarsdóttur í Ríkisútvarpinu í þættinum Sögur af landi 26. nóvember 2017.
Viðtalið „Spegill sálarinnar” sem Unnur Jóhannsdóttir tók við Unni Óttarsdóttur fyrir tímaritið Vikuna 14. nóvember 2000. 46. tölublað, 63 árgangur bls. 10-12.