Boðið er upp á fjölbreytt námskeið í Listmeðferð Unnar fyrir starfsfólk stofnana, félagasamtök og aðra hópa. Staðsetning námskeiðanna fer eftir þörfum hvers og eins, til dæmis í Listmeðferð Unnar, fyrirtækjum, stofnunum eða á öðrum stöðum eftir því sem hentar. Námskeiðin fara einnig fram í listkennsludeild Listaháskóla Íslands og við Símenntun Háskólans á Akureyri. Einnig er boðið uppá fjarnámskeið í gegnum veraldarvefinn. Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á netfangið unnur@unnurarttherapy.is til að fá frekari upplýsingar.
Námskeiðin byggjast á fyrirlestrum, umræðum og vinnustofum þar sem þátttakendur taka þátt í sköpunarferli og upplifa þá möguleika sem það veitir. Miðlað er þekkingu um kenningar og aðferðir listmeðferðar. Hvorki er gerð krafa um fyrri reynslu né þekkingu af listsköpun. Sköpunarferlið gefur þátttakendum tækifæri til sjálfstjáningar, eflir sjálfsþekkingu og eykur persónulegt innsæi sem hvetur til jákvæðra breytinga. Í nemendahópnum skapast tækifæri til að deila reynslu, tilfinningum og hugsunum ásamt því að upplifa samkennd og öðlast nýja sýn á eigin viðfangsefni.